top of page

    Heimagert Baileys

    • Writer: Baldur Sverrisson
      Baldur Sverrisson
    • Nov 13, 2018
    • 1 min read

    Updated: Aug 3, 2024


    Ég elska Baileys, elska samt aðalega að nota það í matseld, gera t.d. súkkulaðimús eða ís. Þetta er öðruvísi útgáfa en það sem þú kaupir í Ríkinu.Þetta eru 2 mismunandi bragðtegundir en auðvitað má nota það súkkulaði sem er í uppáhaldi hjá hverjum og einum.


    Hráefni

    • Rjómi 1 bolli

    • Súkkulaði að eigin vali 150-200g súkkulaði að eigin vali (ég hef t.d. notað mars, dökkt súkkulaði og dumle karamellur)

    • Sæt niðursoðin mjólk 1 dós

    • Viskí 1 2/3 bolli

    • Salt 1 tsk

    Aðferð

    1. Bræðið saman rjóma og súkkulaði

    2. Setjið restina af hráefnunum í blandara og blandið vel

    3. Setjið rjóma- súkkulaðiblönduna síðan útí






    Comments


    • Facebook
    bottom of page