top of page

    Karamellukaka með tvisti

    • Writer: Baldur Sverrisson
      Baldur Sverrisson
    • Oct 31, 2019
    • 2 min read

    Updated: Dec 12, 2019

    Ég pæli mikið í karamellukökum, sumir myndu segja of mikið. Fastagestir hér á síðunni taka líklega eftir því að þetta er önnur karamellukakan með stuttu millibili sem kemur hingað inn, en alls ekki síðasta. Þessi er þó ekki lík hinni á neinn annan hátt. Þetta er mjög bragðmikill kökubotn sem væri hægt að gera margt annað við t.d. setja á rjómaostakrem. Kremið býður líka uppá marga valmöguleika enda mjög ríkt. Ef þið hafið ekki tíma til að gera kremið er það næsta sem þið finnið líklega dulche de leche.


    Hráefni


    Kakan

    • Smjör 200g

    • Púðursykur 100g

    • Egg 3 stk

    • Börkur af einu lime

    • Kókosmjólk 1 dós

    • Hveiti 280g hveiti

    • Kókosmjöl 50g

    • Möndlumjöl 50g

    • Salt 1 tsk

    • Matarsódi 2 tsk

    • Lyftiduft 2 tsk

    Kremið

    • Smjör 120g

    • Púðursykur 1 ½ bolli

    • Sykur 1 ½ bolli

    • Rjómi 1 bolli

    • Salt ½ tsk

    • Vanilludropar 1 tsk

    • Flórsykur 1 bolli


    Aðferð


    Kakan

    1. Þeytið saman smjör og sykur þar til blandan verður létt og ljós ca 5 mínutur og bætið síðan við eggjunum einu í einu og þeytið á milli

    2. Rífið limebörkinn og setjið útí áfram kókosmjólkinni og þeytið í 1 mínútu eða þar til þetta er komið saman

    3. Bætið þurrefnunum útí og blandið varlega saman við með sleikju

    4. Skiptið deiginu í tvö form sem eru 24cm að þvermáli og setjið inní ofn í 35-40 mínútur á 180°c og blæstri

    5. Kælið kökuna áður en kremið er sett á

    Kremið

    1. Á pönnu setjið þið helminginn af bæði smjörinu og rjómanum, saltinu, púðursykrinum og 1 bolla af sykrinum. Leyfið þessu að bráðna saman og síðan malla á miðlungs hita. Hrærið stöku sinnum

    2. Á meðan þetta er í gangi takið þið aðra pönnu eða pott og setjið afganginn af sykrinum þar á og leyfið honum að bráðna og mynda sýróp yfir miðlungshita

    3. Þegar sykurinn er bráðnaður hellið þið honum yfir á hina pönnuna og blandið saman við karamelluna og leyfið að malla í 30 sekúndur

    4. Hellið karamellunni í í hrærivélaskál og byrjið að þeyta blönduna. eftir 1 mínútu setjið þið restina af rjómanum útí og síðan mínútu síðar restina af smjörinu og hrærið áfram í 5 mínútur

    5. Skiptið næst út þeytaranum út k-ið og bætið flórsykrinum útí og hrærið áfram í 5 mínútur

    6. Setjið kremið á kökuna



    留言


    • Facebook
    bottom of page