top of page
Writer's pictureBaldur Sverrisson

Dásamleg bleikja í útileguna

Updated: Aug 2, 2024

Þessi bleikja er ótrúlega bragðmikil og það eru fá hráefni sem þarf í hana, sem er hentugt fyrir útilegu. Auðvitað hentar þessi uppskrift líka fyrir t.d. lax.


Hráefni (2 meðalstór flök sem dugar fyrir ca 4)


2 stk sítrónur

4 stilkar ferskt timian

hálf lúka fersk basilika

hálf lúka fersk steinselja

Salt og pipar

Aspas stilkar ef vill

Bleikjuflök

Álpappír


Aðferð


  1. Skerið sítrónurnar í sneiðar

  2. Leggið annað flakið á álpappírinn þannig að roðið snúi niður. Stráið yfir salti og pipar eftir smekk. Raðið sítrónusneiðunum frá annari sítrónunni ofan á ásamt helmingnum af kryddjurtunum. Gott getur verið að kreista sítrónuna aðeins yfir. Gerið það sama við hitt flakið.

  3. Vefjið álpappírnum vel utan um. Setjið annað lag af álpappír yfir þar sem hinn mætist svo hægt sé að snúa bleikjunni á grillinu án þess að safinn leki út.

  4. Grillið í u.þ.b 10-15 mínútur á heitu og munið að betra er að hafa hana styttra en lengur. Hún bakast aðeins áfram eftir að hún kemur af grillinu.






Comments


bottom of page