Babka með súkkulaðifyllingu
- Baldur Sverrisson
- Apr 30, 2020
- 2 min read
Updated: Jul 23, 2020
Ég vil bara segja það strax að þessi uppskrift er ekki jafn fólkin og hún lítur út fyrir að vera. Hún er í rauninni sára einföld. Hún er líka mjög góð. Brauðið sjálft er mjúkt og gott og svo er hægt að leika sér endalaust með fyllingar. Ef þið viljið gera þessa uppskrift enn einfaldari til dæmis má skipta súkkulaðifyllingunni út fyrir Nutella, þó ég mæli eindregið með þessari fyllingu. Ég hef líka gert súrdeigsútgáfu af þessari uppskrift með eplafyllingu.
Hráefni
Mjólk 110g
Púðursykur 40g
Ger 5g
Blátt Kornax hveiti 300g
Egg 2 stk
Salt 1/2 tsk
Smjör 70g
Fylling
Rjómi 1dl
Púðursykur 20g
Sykur 20g
Klípa af salti
Suðusúkkulaði 100g
Smjör 60g
Vanilludropar 1tsk
Flórsykur 1msk
Kakó 1msk
Aðferð
Hitið mjólkina að suðu og blandið svo saman við eggin ásamt púðursykri og geri, látið standa í 5 mínútur.
Blandið síðan öllu saman við nema smjöri og hnoðið í hrærivél í ca 5 mínútur eða þar til deigið kemur saman og byrjar að losna frá botninum, látið síðan standa í 15 mínútur.
Hnoðið síðan deigið á miðlungslágri stillingu og bætið smjörinu smám saman við. Hnoðið síðan í auka 5 mínútur eftir að smjörið kemur saman við.
Látið hefast uppá bekk í 2klst og berjið síðan loftið úr deiginu með því að þrýsta hnefanum niður á það einu sinni. Geymið síðan í ísskáp yfir nótt.
Takið úr ísskáp og fletjið út líkt og þið væruð að gera kanil- eða pizzasnúða. Passið að fletja deigið ekki of þunnt því þá verður erfiðara að flétta það
Dreifið fyllingunni á útflett deigið og rúllið upp líkt og með fyrrnefnda snúða.
Skerið síðan rúlluna langsum og fléttið saman.
Setjið í jólakökuform og penslið með eggja-mjólkurblöndu og látið hefast í 2 klst.
Bakið við 180°C í 30-35 mínútur eða þar til pinni sem stungið er í kemur hreinn út.
Fylling
Hitið saman rjóma, sykur og púðursykur þar til sykurinn bráðnar og síðan að suðu.
Brjótið súkkulaðið í skál ásamt smjöri, salti og vanilludropum.
Hellið heitri rjómablöndunni yfir og leyfið súkkulaðinu og rjómanum að bráðna og hrærið síðan saman.
Bætið saman við flórsykri og kakó.

Comments